Beint í efni

AFHENDINGAR OG SKILAFRESTUR

Afhendingar

Við sendum um innanlands í samstarfi við Póstinn og Dropp og erlendis í samstarfi við Póstinn og DHL. Frí heimsending er á pöntunum innanlands sem gerðar eru yfir 15.000 krónur. Póstsendingar taka alla jafna um 1-7 virka daga, algengast er að þær taki um 2-4 virka daga. Hægt er að fylgjast með stöðu sendinga í gegnum heimasíður sendingaraðila þegar tilkyninning hefur borist um að sendingin sé farin af stað frá okkur. Athugið að tölvupóstur varðandi stöðu sendinga getur lent í ruslpóstinum. Hægt er að velja um að fá sent til sín í næsta póstbox, pósthús eða heim að dyrum, en verð eru reiknuð af sendingaraðilum útfrá staðsetningu.

Skil á vöru

Ef vill svo til að þig langar að skila nýkeyptri vöru af vefverslun okkar biðjum við þig vinsamlegast um að hafa samband í gegnum tölvupóst: info@feldur.is. Þú munt þurfa að framvísa pöntunarnúmeri, dagsetningu pöntunar og ástæðu fyrir skilum. Mikilvægt er að vörur sem skilaðar eru séu í fullkomnu ásigkomulagi. Kostnaður við skil fellur alfarið á kaupanda vörunnar. Gakktu úr skugga um að varan sé nákvæmlega eins og þegar þú tókst við henni með miða og öðru tilheyrandi. Þú mátt endursenda vöruna með hvaða örugga dreifingaraðila sem er. Við mælum með frakt fyrir viðskiptavini sem staddir eru erlendis. Vinsamlegast taktu eftir að ef þú velur að endursenda vöruna, fellur ábyrgð tryggingar í flutningi á þig.

Skipti á vöru

Það er enginn kostnaður falinn í skiptum á vöru í aðra stærð eða annan lit en þann sem þú pantaðir, nema ef annað verð er á vörunni sem skipt er í (athugið einstaka litir geta verið á afslætti). Athugið þó að öll vöru skipti fara eftir lagerstöðu hverju sinni. Viðskiptavinur greiðir fyrir flutningskostnað á nýrri vöru, einnig gæti hann þurft að greiða fyrir innflutningstolla og virðisaukaskatt ef viðskiptavinur er staddur erlendis.

Til þess að fá vöru skipt, vinsamlegast hafið samband við okkur í gegnum info@feldur.is. Þaðan munum við leiðbeina þér í skiptunum. Vinsamlegast tilgreinið ef um aðra stærð eða lit er að ræða.

Vinsamlegast athugið að við getum einungis skipt á stærð og/eða lit á vöru. Ef þig langar að skipta í aðra vöru mælum með því að óska eftir endurgreiðslu á vörunni og leggja svo inn nýja pöntun í gegnum vefverslunina.

Endurgreiðsla ef verlsað er á netinu.

ATH. þessir skilmálar eiga eingöngu við um viðskipti sem fara fram í gegnum vefverslun okkar, www.feldur.is, aðrar reglur gilda um skil og skipti fyrir vörur sem keyptar eru í verslun okkar á Snorrabraut 56.

Frá dagsetningu sendingar frá okkur hefur viðskiptavinur 14 daga til að óska eftir endurgreiðslu. En á heimasíðu Neytendastofu kemur fram að sé hlutur keyptur á netinu hafi neytandi meiri rétt á að skila vöru en ellegar. Sjá nánar.

Endurgreiðslan kemur í gegn á upprunalegu kreditkorti viðskiptavinar. Ef svo ólíklega vill til að varan sem þú pantaðir er gölluð, endurgreiðum við einnig allan flutningskostnað gölluðu vörunnar en það er ekki fyrr en varan hefur borist til okkar og hún hefur verið metin gölluð.

Þar sem Ísland er ekki hluti af Evrópusambandinu eru innflutnningstollar og skattur óendurgreiðanlegir. Við mælum með því, ef þið eruð stödd erlendis að þið hafið samband við tollstjórann í ykkar umdæmi upp á nákvæmar upplýsingar hvað þetta varðar, þar sem reglur eru mismunandi eftir hverju landi fyrir sig.

Vinsamlegast athugið að endurgreiðslur geta tekið allt að 7 virka daga, en fer það eftir bankanum sem þú ert í viðskiptum við. Við mælum með því að hafa samband við bankann þinn ef þú hefur spurningar varðandi endurgreiðslur á kreditkort.

Heimilisfang ef endursenda á vöru:

Feldur verkstæði ehf.
Snorrabraut 56
105 Reykjavík
SSN: 4505091080
VAT NR. 101217